Alvöru íþróttasokkar !
Sérhannaðar vörur
BV SPORT er franskt íþróttavörumerki sem sérhæfir sig í compression-/þrýstingsklæðnaði og stuðningsfatnaði fyrir íþróttamenn. BV Sport er með vörur fyrir hlaupara, hjólreiðafólk, þá sem stunda þríþraut, trail-hlaup og fleiri íþróttagreinar.
BV Sport og vöruþróun
BV SPORT var stofnað árið 1998 og er leiðandi franskt merki í þrýstingsfatnaði sem byggir á vísindalegri vöruþróun, klínískum rannsóknum. BV Sport er með mörg alþjóðleg einkaleyfi fyrir þrýstingsvörur.
Vörurnar eru framleiddar í Saint-Étienne í Frakklandi, og fyrirtækið vinnur stöðugt með íþróttafélögum, keppnisfólki í fremstu röð og fagfólki þannig að vörurnar eru sífellt að þróast og um leið breikkar vörulínan.